Sölustjóri Porsche

Porsche á Íslandi leitar að öflugum einstaklingi í starf sölustjóra. Sölustjóri þarf að hafa reynslu af bílamarkaðinum, vera skipulagður í vinnubrögðum ásamt því að búa yfir leiðtogahæfileikum og hafa reynslu af sölustörfum.

Starfssvið:

  • Ber ábyrgð á mótun stefnu og markmiða söludeildar Porsche í samráði við forstjóra
  • Ber ábyrgð á gerð söluáætlana og eftirfylgni þeirra í samstarfi við markaðsstjóra
  • Stýrir sölufundum
  • Ber ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi söludeildar
  • Yfirumsjón með tilboðsgerð og uppítökum
  • Vinnur með vörumerkjastjóra Porsche að pöntunumá nýjum bílum
  • Sala og ráðgjöf til viðskiptavina

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af sölustjórnun
  • Þekking á bílamarkaðinum
  • Leiðtogahæfileikar og frumkvæði til að ná árangri
  • Framúrskarandi þjónustulund
  • Góð færni í mannlegum samskiptum
  • Útsjónarsemi og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð Excel og almenn tölvukunnátta
  • Góð enskukunnátta í töluðu og rituðu máli
  • Sala og ráðgjöf til viðskiptavina

Umsókn ásamt ferilskrá sendist fyrir 16. febrúar 2024, merkt „Sölustjóri Porsche“, á netfangið tryggvi@benni.is.
Fullum trúnaði er heitið.