Spennandi hjólreiðakeppni á Völlunum
Porsche Criterium mótið fimmtudaginn 15. maí

Hjólreiðafélag Reykjavíkur, í samstarfi við Bílabúð Benna, efnir til Porsche Criterium hjólreiðamótsins fimmtudaginn 15. maí.
Criterium keppnisformið (Racer) á sér langa sögu erlendis og hefur verið stundað hérlendis í nokkur ár með vaxandi vinsældum. Það gengur útá stuttar vegalengdir og er annálað fyrir mikinn hraða og spennu og einmitt þess vegna kemur Porsche við sögu. Keppt er á götuhjólum, í nokkrum flokkum karla og kvenna,
Vonast er til að sem flestir mæti til leiks, en keppnin er einnig sérlega áhorfendavæn og t.d. upplagt fyrir krakka að koma og hvetja foreldra sína til dáða.
Mótið verður haldið á Völlunum í Hafnarfirði og hefst kl. 19:00 á fimmtudagkvöld. Hver riðill tekur ekki langan tíma og allir eru velkomnir. Sjá nánar um mótið hér
Veitt verða sérstök sprettmeistaraverðlaun, þar sem sprettharðasti einstaklingur mótsins er heiðraður.
Porsche á Íslandi veitir einnig sérstök verðlaun.
Allar nánari upplýsingar um skráningu og framkvæmd er að finna á hfr.is
Smelltu á kortið hér að neðan til að sjá staðsetningu mótsins:
Eldri fréttir
-
15. ágú 2023Porsche sýning á Menningarnótt
-
22. jún 2023Porsche 911 Sport Classic frumsýndur
-
16. jún 2023Bílabúð Benna lækkar vexti!
-
11. maí 2023Við frumsýnum Cayman GTS og Cayman GT4 RS.
-
23. nóv 2022Súperdagar Sixt eru hafnir!
-
27. jún 2022Porsche Cayenne E-Hybrid Platinum Edition frumsýndur.
-
31. maí 2022Opnunartími í sumar
-
25. maí 2022Uppstigningardagur
-
20. apr 2022Porsche 911 Turbo frumsýndur
-
19. nóv 2021Stórglæsileg rafbílasýning