Porsche styður UNICEF
Þýski bílaframleiðandinn Porsche hefur látið fjárframlag renna til menntunarverkefnis ætlað börnum sýrlenskra flóttamanna í Mardin, sem er borg á landamærum Sýrlands og Tyrklands.
„Porsche vill láta til sín taka við að bæta aðstæður barna um allan heim og styrkja réttindi þeirra á öllum sviðum,“ segir Andreas Haffner, stjórnarmaður í mannauðsráði Porsche AG, við afhendingu á fyrsta framlaginu í ráðhúsi Stuttgart. „Við ætlum að styðja við mörg verkefni hjá Barnahjálp sameinuðu þjóðanna á komandi ári, í samvinnu við borgaryfirvöld í Stuttgart.“
UNICEF hefur verið í nánu samstarfi, til eins árs í senn, við stórborgir í Þýskalandi sem og höfuðborgir margra ríkja síðan 1991. Samstarfið við Stuttgart hófst 20. nóvember sl., en sá dagur er helgaður réttindum barna hjá Sameinuðu þjóðunum. „Börnin eru framtíðin“
„Börnin eru mestu verðmæti heimsins. Börn þurfa að eiga framtíðarsýn í öllum heimshlutum og búa við traust, öryggi og skjól frá ofbeldi og hvers konar misnotkun. Porsche styður baráttu Barnahjálpar sameinuðu þjóðanna, á þessum vettvangi jafnt í Þýskalandi sem á heimsvísu. Við erum sérlega stolt yfir því,“ segir Andreas Haffner hjá Porsche.
Eldri fréttir
-
02. sep 2024Turbo dagar 2.-7. september
-
10. jún 2024Rafmagnaðir sumardagar Porsche
-
04. jún 2024Nýr alrafmagnaður Taycan frumsýndur
-
21. maí 2024KGM sýning 25. maí
-
07. maí 2024911 dakar sýning á laugardag
-
30. apr 2024Nýr Cayenne Turbo GT frumsýndur á laugardag
-
24. apr 2024Opnunartímar Bílabúðar Benna, 24. apríl út júní.
-
07. mar 2024Lokað laugardaginn 9 mars
-
21. des 2023Opnunartími yfir jól og áramót
-
15. ágú 2023Porsche sýning á Menningarnótt