Porsche slær met – aftur!

verður frumsýndur hér á landi bráðlega.
Porsche sló enn eitt sölumetið á nýliðnu ári, 2016.
Þá afgreiddi Porsche sportbílaverksmiðjan í Stuttgart 237,778 eintök inná heimsmarkaðinn, það er 6% bæting á metinu sem sett var árið 2015. Markaðirnir í Evrópu, Bandaríkjunum og Kína eru drifkraftar vaxtarins, þar sem sportjeppinn Macan og nýi sportbíllinn 718 Boxster leiða söluaukninguna. Einnig er til þess tekið hvað nýi Panamera setur mikinn svip á sóknina.
„Það er ljóst að sá styrkur sem liggur í breidd bílalínunnar er lykillinn að met söluaukningningu síðasta árs,“ segir Oliver Blume, forstjóri Porsche. „Porsche nafnið er samnefnari yfir tilfinningu og gæði. Og sú jákvæða þróun sem endurspeglast í metsölu síðasta árs er staðfesting á óbilandi ástríðu viðskiptavina okkar. Engu að síður er það sjónarmið okkar að sérstaða Porsche á markaðnum sé jafn mikilvæg og sölutölurnar á hverjum tíma. Það er ljóst að sterk ímynd vörumerkisins og þéttriðið net af kappsfullu sölufólki er sá grundvöllur sem við munum byggja á til framtíðar,“ segir Oliver.
Að sögn fyrirtækisins liggja helstu vaxtarbroddar framleiðslunnar á nýliðnu ári í 718 Boxster, sem óx um 9% á milli ára, með 12,848 eintaka sölu. Að sama skapi heldur Porsche 911 sterkri ímyndarstöðu sinni með sölu á 32,408 bílum sem er 2% magnaukning milli ára. Þá styrkir Macan enn stöðu sína sem mest seldi bíllinn frá Porsce með 95,642 eintaka sölu, sem er aukning um heil 19%.
Af helstu markaðssvæðum má nefna að vöxturinn er 5% í Evrópu og sú sama í prósentum talið á hinum ört vaxandi Bandaríkjamarkaði, með sölu 54,280 eintaka. Þá mælist Kína, enn og aftur, sterkasta markaðssvæði Porsche með 12% aukningu og sölu á 65,246 bílum.
Porsche bregst nú enn frekar við eftirspurninni í Kína með fjölgun á sölustöðum og eins ráðgerir fyrirtækið að opna svokallaða Porsche upplifunarmiðstöð í Shanghai á þessu ári. Á næstu vikum mun síðan önnur kynslóð af endurhönnuðum Panamera halda innreið sína á fjölda markaða. Fimm dyra station útgáfa þessa ofurbíls, Panamera Sport Turismo, verður síðan frumsýndur í mars á bílasýningunni í Genf.
Eldri fréttir
-
15. ágú 2023Porsche sýning á Menningarnótt
-
22. jún 2023Porsche 911 Sport Classic frumsýndur
-
16. jún 2023Bílabúð Benna lækkar vexti!
-
11. maí 2023Við frumsýnum Cayman GTS og Cayman GT4 RS.
-
23. nóv 2022Súperdagar Sixt eru hafnir!
-
27. jún 2022Porsche Cayenne E-Hybrid Platinum Edition frumsýndur.
-
31. maí 2022Opnunartími í sumar
-
25. maí 2022Uppstigningardagur
-
20. apr 2022Porsche 911 Turbo frumsýndur
-
19. nóv 2021Stórglæsileg rafbílasýning