Opel Astra – Bíll ársins í Danmörku

skrifað fimmtudagur, 3. desember, 2015
Opel Astra – Bíll ársins í Danmörku

Fyrr í vikunni tilkynnti félag danskra bílablaðamanna um val á Bíl ársins í Danmörku 2016. Nýjasti Opel Astra stóð uppi sem sigurvegari.

Í þessu vali hafði Astra betur í samkeppninni við virtar bílategundir einsog Volvo XC90, Audi A4, Jaguar XE og Mazda CX-3. Þessi útnefning kemur í kjölfarið á að Opel Astra hreppti önnur afar eftirsóknarverð verðlaun, sem voru veitt í Berlín í síðasta mánuði; Gullna stýrið 2016.

Valið um bíl ársins í Danmörku hefur farið fram síðan 1969 og hefur Opel hampað titlinum fimm sinnum á þeim tíma. Fyrri sigurvegarar Opel eru eftirtaldir: Árið 2012: Rafmagnaður Opel Ampera, 2007: Opel Corsa, 1985: Opel Kadett og 1980: Opel Kadett 1,3.

Það er ljóst að Opel Astra er hvarvetna að slá í gegn. Samkvæmt upplýsingum frá Bílabúð Benna, sem er umboðsaðili Opel á Íslandi, verður þessi verðlaunagripur kynntur rækilega á næstunni hjá fyrirtækinu.