Nýr Malibu á Bókamessu í Ráðhúsinu
skrifað mánudagur, 19. nóvember, 2012

Það var mikið um dýrðir á Bókamessu sem haldin var í Ráðhúsi Reykjavíkur um helgina. Bókaútgefendur kynntu nýjustu afurðir sínar fyrir gestum og gangandi, sem sjá fram á fjölbreytt og gefandi bókajól. Í þeim hópi er bókin Bílar í máli og myndum, sem kemur út hjá JPV útgáfu/Forlaginu.
Hún er stórskemmtileg og fræðandi og leiðir okkur í gegnum sögu þessa merkilega farartækis, sem umbylti 20. öldinni. Í henni er fjallað um ríflega 1200 bíla af öllum stærðum og gerðum. Chevrolet á stóran þátt í þróun bílsins og því þótti tilvalið að láta nýjan Malibu taka á móti sýningargestum við inngang Ráðhúsins. Hann sómdi sér vel og bar framleiðendum sínum gott vitni.
Eldri fréttir
-
15. ágú 2023Porsche sýning á Menningarnótt
-
22. jún 2023Porsche 911 Sport Classic frumsýndur
-
16. jún 2023Bílabúð Benna lækkar vexti!
-
11. maí 2023Við frumsýnum Cayman GTS og Cayman GT4 RS.
-
23. nóv 2022Súperdagar Sixt eru hafnir!
-
27. jún 2022Porsche Cayenne E-Hybrid Platinum Edition frumsýndur.
-
31. maí 2022Opnunartími í sumar
-
25. maí 2022Uppstigningardagur
-
20. apr 2022Porsche 911 Turbo frumsýndur
-
19. nóv 2021Stórglæsileg rafbílasýning