Frumsýning á Opel Mokka-e

skrifað fimmtudagur, 27. maí, 2021
byrjar 27. maí 2021
 
MokkavefurMokkavefur

Mikil samkeppni ríkir í rafbílaheiminum og þar hefur þýski bílaframleiðandinn Opel farið mikinn undanfarin misseri. Nú á dögunum kynntu þeir til sögunnar 100% rafbílinn Mokka-e, sem sagt er að marki tímamót í rafmagnaðri vegferð Opel, enda leggi hann línurnar fyrir það sem einkenna mun framleiðsluna á næstu árum. Þá segir einnig að Mokka – e sé nýtt og afgerandi framlag Opel í þróun rafbílatækninnar til framtíðar.

100% rafbíllinn Mokka, endurspeglar enn eitt risaskrefið sem fyrirtækið stígur í átt að heilnæmum og grænum heimi. Mokka - e hefur og vakið mikla athygli bílagagnrýnenda. „Já, það er sannarlega stuð í rafbílaframleiðslunni hjá Opel og það segir sína sögu að Mokka-e fór beint í úrslit á lista íslenskra bílablaðamanna við yfirstandandi val á bíl ársins á Íslandi,“ segir Benedikt Eyjólfsson hjá Bílabúð Benna. „Þetta er rafbíllinn sem margir hafa beðið eftir, langdrægur og einstaklega þægilegur í umgengni; með háa sætisstöðu, góða veghæð og alla hugsanlega tækni innan seilingar ökumanns," segir Benedikt.

Frumsýningin á Opel Mokka stendur frá kl. 12:00 til 16:00 á laugardaginn og eru allir hjartanlega velkomnir.