Leynigestir frá Bílabúð Benna í Fífunni um helgina

gleðja marga og nýjan Rexton sem er 4X4 jeppi ársins að mati
sérfræðinga 4X4 Magazine
Tvær nýjustu stjörnur SsangYong, Musso og Rexton verða forsýndir á 35 ára afmælissýningu Ferðaklúbbsins 4X4, í Fífunni, Kópavogi, frá föstudeginum 14. til sunnudagsins 16. september.
Undanfarin ár hefur SsangYong í Suður-Kóreu stimplað sig inn sem einn framsæknasti bílaframleiðandi heims og í kjölfarið hafa fylgt verðlaun og viðurkenningar í samkeppni við þekktustu nöfnin í hverjum flokki.
Nú á dögunum var, tilkynnt um val sérfræðinga hins virta tímarits, 4X4 Magazine, á „Best 4X4 of the year 2018“. Þar stóð nýjasta útfærslan af Rexton jeppanum, uppi sem sigurvegari og hlaut líka hæstu einkunn í samandregnu heildarmati á eiginleikum allra jeppanna í 4X4 flokknum. Sannarlega frábært veganesti í frekari landvinninga hérlendis.
Á meðal þeirra sem Rexton atti kappi við voru nöfn einsog Jeep Wrangler JK, Mercedes-Benz G-Class og Toyota Land Cruiser.
Margir landsmenn eiga góðar minningar um hörkutólið Musso sem sló öll sölumet hérlendis á árunum 1995 til 2001, en þá var framleiðslu hans hætt. Orginal Musso jepparnir eru ennþá áberandi í umferðinni og hundruðir Íslendinga eru í hópi áhugamanna um Musso á Facebook, þó rúm 20 ár séu liðin síðan þeir komu til landsins. Það segir sína sögu.
Margir hafa því átt sér þá ósk að framleiðsla á Musso hæfist á ný. Og nú hefur hún ræst – goðsögnin er endurfædd - og hvílíkur jeppi, bókstaflega hlaðinn staðalbúnaði og hörkuflottur. Eina vandamálið, sem stendur, er það að SsangYong annar ekki eftirspurn eftir nýja Musso og leggur fyrst um sinn áherslu á að framleiða upp í forpantanir á Asíumarkaði, en Ísland er komið framarlega í röðina og báðir jepparnir eru væntanlegir í sölu hérlendir um áramótin.
Bílabúð Benna tókst að útvega og fá til landsins, með hraði frá Ítalíu, þessar tvær nýjustu stjörnur SsangYong, Musso og Rexton. Þeir verða forsýndir á 35 ára afmælissýningu Ferðaklúbbsins 4X4, í Fífunni, Kópavogi, frá föstudeginum 14. til sunnudagsins 16. september. Þar verða yfir 100 glæsilegir ferðajeppar klúbbfélaga til sýnis auk þess sem fjölmörg fyrirtæki verða með kynningu á því nýjasta sem þeir hafa að bjóða.
Fólk er hvatt til að koma og eiga góðar stundir í Fífuna um helgina.
Opnunartími sýningar:
Föstudagur kl.18:00 - 21:00
Laugardagur kl.11:00 - 18:00
Sunnudagur kl. 11:00 - 18:00
Frítt er fyrir 14 ára og yngri.
Eldri fréttir
-
15. ágú 2023Porsche sýning á Menningarnótt
-
22. jún 2023Porsche 911 Sport Classic frumsýndur
-
16. jún 2023Bílabúð Benna lækkar vexti!
-
11. maí 2023Við frumsýnum Cayman GTS og Cayman GT4 RS.
-
23. nóv 2022Súperdagar Sixt eru hafnir!
-
27. jún 2022Porsche Cayenne E-Hybrid Platinum Edition frumsýndur.
-
31. maí 2022Opnunartími í sumar
-
25. maí 2022Uppstigningardagur
-
20. apr 2022Porsche 911 Turbo frumsýndur
-
19. nóv 2021Stórglæsileg rafbílasýning