Chevrolet og Porsche í Fífunni

“Við erum sérlega stolt af framlagi okkar til sýningarinnar Allt á hjólum, að þessu sinni”, segir Benedikt Eyjólfsson, forstjóri Bílabúðar Benna,. “Breiddin í Chevrolet vörumerkinu hjá okkur hefur aldrei verið meiri og að þessu sinni frumsýnum við tvo nýja bíla frá þeim, smájeppann Trax og Cruze station, hvoru tveggja bíla sem hafa vakið mikla athygli. Auk þess erum við að kynna sérstaklega Cruze LT, sem á eftir að koma viðskiptavinum skemmtilega á óvart fyrir ríkulegan staðalbúnað og ótrúlegt verð.
Chevrolet er í sókn um allan heim og kaupendum stendur því til boða fleiri valkostir, glæsilegri línur og umhverfisvænni lausnir en nokkru sinni fyrr, - og það á mjög viðráðanlegu verði.“
Bílabúð Benna mun einnig sýna rjómann af snilldinni frá Porsche í Fífunni: Porsche Cayman sem var valinn Sportbíll heimsins 2013, 911 C4S Cabrio blæjubílinn og Cayenne Diesel jeppann. “Við hlökkum því til að fá fólk til okkar í Fífuna um helgina og vekjum líka athygli á því að Chevrolet salurinn í Tangarhöfða verður eftir sem áður opinn á laugardaginn, frá 12:00 til 16:00, fyrir þá sem vilja koma, skoða og reynsluaka.”
Eldri fréttir
-
15. ágú 2023Porsche sýning á Menningarnótt
-
22. jún 2023Porsche 911 Sport Classic frumsýndur
-
16. jún 2023Bílabúð Benna lækkar vexti!
-
11. maí 2023Við frumsýnum Cayman GTS og Cayman GT4 RS.
-
23. nóv 2022Súperdagar Sixt eru hafnir!
-
27. jún 2022Porsche Cayenne E-Hybrid Platinum Edition frumsýndur.
-
31. maí 2022Opnunartími í sumar
-
25. maí 2022Uppstigningardagur
-
20. apr 2022Porsche 911 Turbo frumsýndur
-
19. nóv 2021Stórglæsileg rafbílasýning