Chevrolet TRAX kemur sterkur inn í júlí

TRAX, nýi jepplingurinn frá Chevrolet, er þegar farinn að hlaða á sig rósum á mörkuðum erlendis. Nú á dögunum var kynnt úttekt sem EURO NCAP gerði á honum. NCAP er sjálfstæð stofnun sem metur árekstravarnir nýrra fólksbíla í Evrópu. TRAX hlaut 5 stjörnur og hæstu einkunn í sínum flokki, sem er ennþá athyglisverðara fyrir þá sök að árið 2013 voru innleiddir mun strangari staðlar við prófanirnar.
TRAX er þar með orðinn sjötti bíllinn frá Chevrolet sem flaggar Euro NCAP öryggisstimplinum eftirsótta. Fyrir eru Aveo, Volt, Cruze , Orlando, Malibu og Captiva. “Þetta eru flottar fréttir því TRAX er sérlega spennandi viðbót við Chevrolet fjölskylduna og vakti mikla athygli á bílasýningunni í Fífunni í vor”, segir Benedikt Eyjólfsson hjá Bílabúð Benna. “ TRAX jepplingurinn kom á Evrópumarkaðinn í maí og við fáum hann til okkar í júlí”.
Eldri fréttir
-
15. ágú 2023Porsche sýning á Menningarnótt
-
22. jún 2023Porsche 911 Sport Classic frumsýndur
-
16. jún 2023Bílabúð Benna lækkar vexti!
-
11. maí 2023Við frumsýnum Cayman GTS og Cayman GT4 RS.
-
23. nóv 2022Súperdagar Sixt eru hafnir!
-
27. jún 2022Porsche Cayenne E-Hybrid Platinum Edition frumsýndur.
-
31. maí 2022Opnunartími í sumar
-
25. maí 2022Uppstigningardagur
-
20. apr 2022Porsche 911 Turbo frumsýndur
-
19. nóv 2021Stórglæsileg rafbílasýning