Cayenne S E-Hybrid plug-in er sá grænasti.

Auto Test and Ökotrend, óháð rannsóknarstofnun á sviði umhverfismála, birti á dögunum ítarlega úttekt sína í samnefndu fagriti. Þar er Porsche Cayenne S E-Hybrid plug-in sæmdur titlinum umhverfisvænasti bíllinn í sínum flokki árið 2017.
Í umhverfisúttekt stofnunarinnar er allur ferill bílanna undir, allt frá grunn framleiðslunni til endurvinnslu að líftíma loknum. Í ár stóð Cayenne S E-Hybrid sig best í samanburðinum í jeppaflokki (SUV category). Með sigri sínum í samkeppninni um grænasta bílinn 2017 leggur Cayenne S E-Hybrid plug-in að velli tegundir einsog Mersedes GLE 500e og BMW X5 40e.
Þessi virti rannsóknaraðili, Auto Test and Ökotrend, hefur útnefnt umhverfisvænustu bíla á markaðnum á hverjum tíma í rúm tuttugu ár. Við matið er litið til margra þátta. Til viðbótar við hávaðamengun og útblástur eru lykilatriði matsins eldsneytisnotkun, gæði framleiðsluferla og endurvinnsla. Þá eru umhverfisvitund og samfélagsábyrgð stórir þættir í úttekt fyrirtækisins.
Þú finnur nánari upplýsingar um Cayenne S E-Hybrid plug-in HÉR
Eldri fréttir
-
15. ágú 2023Porsche sýning á Menningarnótt
-
22. jún 2023Porsche 911 Sport Classic frumsýndur
-
16. jún 2023Bílabúð Benna lækkar vexti!
-
11. maí 2023Við frumsýnum Cayman GTS og Cayman GT4 RS.
-
23. nóv 2022Súperdagar Sixt eru hafnir!
-
27. jún 2022Porsche Cayenne E-Hybrid Platinum Edition frumsýndur.
-
31. maí 2022Opnunartími í sumar
-
25. maí 2022Uppstigningardagur
-
20. apr 2022Porsche 911 Turbo frumsýndur
-
19. nóv 2021Stórglæsileg rafbílasýning