Boltinn rúllar hjá Opel og Borussia Dortmund

skrifað þriðjudagur, 15. ágúst, 2017
Nú á dögunum var tilkynnt um framlengingu á samstarfi<br> milli Opel og Borussia Dortmund til næstu fimm ára.Nú á dögunum var tilkynnt um framlengingu á samstarfi
milli Opel og Borussia Dortmund til næstu fimm ára.

Forsvarsmenn Opel og þýsku bikarmeistaranna Borussia Dortmund tilkynntu nú á dögunum um framlengingu á samstarfi fyrirtækjanna til næstu fimm ára.

Gert er ráð fyrir frekari útvíkkun samstarfsins sem tekur m.a. til sameiginlegs kynningar- og fræðslustarfs af mörgu tagi. Samvinna þessara aðila hófst árið 2012 og hafa virt greiningarfyrirtæki gefið því hæstu einkunn með tilliti til sýnileika og trausts á þýska knattspyrnumarkaðinum. Segja má að það sé í beinu samræmi við öfluga framrás Opel merkisins.

„Við fögnum þessum áfanga og sjáum mikil tækifæri í enn nánara samstarfi við Borussia Dortmund, leikmenn þeirra og stuðningsmenn á komandi árum. Reynslan sýnir okkur, að á margan hátt, hafa Opel og Dortmund sömu gildin að leiðarljósi í starfsemi sinni og markmiðin eru í grunninn þau sömu; að veita aðdáendum sínum þátt í sérstakri upplifun þar sem keppt er að hámarks árangri,“ segir Jürgen Keller frá Opel.

„Fyrir utan að Opel skarti búninga Dortmund munu aðilar standa saman að þróun nýrra þjónustuþátta við stuðningsmenn Dortmund og veita Opel m.a. kost á beinum samskiptum við þá. Leikmenn Dortmund munu gegna stærra hlutverki í kynningarstarfi Opel og þá mun Opel koma að grasrótarstarfi og þjálfunarbúðum ungliða Dortmund með öflugri hætti í framtíðinni.

Svo má geta þess að samstarf Opel við Jürgen Klopp fyrrverandi þjálfara Dortmund sem nú gerir garðinn frægan hjá Liverpool mun halda áfram af fullum krafti. “ segir Jürgen Keller frá Opel.