Bílabúð Benna tekur við Opel umboðinu af BL

Bílabúð Benna hefur í samstarfi við General Motors (GM), framleiðanda Opel og Chevrolet, komist að samkomulagi um að Bílabúð Benna taki við umboði fyrir Opel á Íslandi.
„Jú það er rétt, Bílabúð Benna mun taka við Opel á Íslandi, enda Opel í eigu General Motors, sem einnig framleiðir Chevrolet. Bílabúð Benna tekur yfir alla þjónustu við Opel viðskiptavini á næstunni.“; sagði Skúli K. Skúlason, framkvæmdastjóri sölusviðs BL ehf., sem vill nota tækifærið og þakka öllum Opel viðskiptavinum BL fyrir ánægjuleg viðskipti á liðnum árum.
„Það eru spennandi tímar framundan fyrir Bílabúð Benna. Við höfum náð flottum árangri með Chevrolet á undanförnum árum og nú bætum við Opel í okkar vöruframboð. Við munum leggja áherslu á að veita Opel eigendum fyrsta flokks þjónustu hér eftir sem hingað til ásamt því að bjóða gott úrval bíla á samkeppnishæfum verðum. “ segir Benedikt Eyjólfsson, eigandi Bílabúðar Benna ehf.
Rætur Opel ná meira en öld aftur í tímann þegar Adam Opel lagði grunninn að fyrirtækinu. Í meira en 110 ár hefur Opel hannað bíla, undir einkunnarorðunum „Wir leben Autos“ eða „Við lifum fyrir bíla“. Opel eru vinsælir um allan heim og á einnig farsæla sögu hér á landi. Það má því segja að Opel, sem lifir fyrir bíla, eigi vel heima hjá Bílabúð Benna, sem hefur verið drifið áfram af einskærum bílaáhuga í tæplega 40 ára sögu fyrirtækisins.
Eldri fréttir
-
15. ágú 2023Porsche sýning á Menningarnótt
-
22. jún 2023Porsche 911 Sport Classic frumsýndur
-
16. jún 2023Bílabúð Benna lækkar vexti!
-
11. maí 2023Við frumsýnum Cayman GTS og Cayman GT4 RS.
-
23. nóv 2022Súperdagar Sixt eru hafnir!
-
27. jún 2022Porsche Cayenne E-Hybrid Platinum Edition frumsýndur.
-
31. maí 2022Opnunartími í sumar
-
25. maí 2022Uppstigningardagur
-
20. apr 2022Porsche 911 Turbo frumsýndur
-
19. nóv 2021Stórglæsileg rafbílasýning