Ævintýri á fjöllum
Veðurblíðan hefur leikið við landsmenn í haust og því fengu þátttakendur í Jeppadegi fjölskyldunnar heldur betur að kynnast á fallegum laugardegi 9. október sl. Eftirvænting skein úr andlitum 300 ferðalanga þegar tæplega hundrað jeppar renndu úr hlaði hjá Bílabúð Benna í bítið þennan dag.
Leiðin lá austur að Laugarvatni og þaðan inn til fjalla. Ekið var að svokallaðri Gullkistu og um Rótarsand að Hlöðufelli. Því næst til austurs um Línuveg og þaðan fram til byggða um Haukadalsheiði.
Með hæfilegri yfirferð gafst ferðafólkinu tækifæri til að njóta náttúrufegurðarinnar til botns í fjallmyndarlegum jeppum frá Bílabúð Benna.
Fjölmargir voru að upplifa sinn fyrsta leiðangur á hálendið og kynnast þeim stórkostlegu ferðamöguleikum sem það býður upp á. Slegið var upp grillveislu að hætti fjallamanna, brugðið á leik og sungið við undirleik harmóníku í tólf stiga hita undir heiðum himni í íslenskum fjallasal.
Starfsfólk Bílabúðar Benna þakkar fyrir eftirminnilegan dag og hlakkar til nýrra ævintýra á fjöllum með viðskiptavinum sínum á næsta ári.
Myndir frá ferðinni eru hér fyrir neðan, smellið á fyrstu myndina og flettið í gegn.