Porsche frumsýnir beinskipt villidýr í Genf

Sportbílaframleiðandinn Porsche er óútreiknanlegur, það er eðli frumkvöðla.
Þegar ofursportbíllinn Porsche 911 GT3, sem búinn er fullkomnustu sjálfskiptingu sem þróuð hefur verið, var settur á markað, fylgdi það sögunni að aldrei nokkurn tímann yrði boðið uppá svo öflugan bíl með beinskiptingu, enda óþarfi þegar völ væri á slíkri yfirburða sjálfskiptingu.
Í fréttatilkynningu frá Bílabúð Benna, umboðsaðila Porsche á Íslandi, þar sem fjallað er um málið, kemur fram að hörðustu aðdáendum Porsche fannst ómaklega að sér vegið og létu það heyrast að þeir ættu nánast sögulegan rétt á slíku tryllitæki með „gírstöng“. Og hvað gerist? Forráðamenn Porsche taka til baka fyrri yfirlýsingar og svöruðu kallinu á þann eina veg sem þeir kunna; að kynna til sögunnar, beinskiptan, 500 hestafla draumasportbíl sem rýfur 100km/klst múrinn á litlum 3.8 sek.
Hann ber nafnið Porsche 911 R og er nú aðalnúmerið í Porsche básnum á bílasýningunni í Genf. Porsche hefur þó sett þann varnagla á að einungis verði framleiddir 991 eintök af 911 R.
Lestu allt um 911 R, nýjasta útspilið frá Porsche, hér: Porsche
Eldri fréttir
-
15. ágú 2023Porsche sýning á Menningarnótt
-
22. jún 2023Porsche 911 Sport Classic frumsýndur
-
16. jún 2023Bílabúð Benna lækkar vexti!
-
11. maí 2023Við frumsýnum Cayman GTS og Cayman GT4 RS.
-
23. nóv 2022Súperdagar Sixt eru hafnir!
-
27. jún 2022Porsche Cayenne E-Hybrid Platinum Edition frumsýndur.
-
31. maí 2022Opnunartími í sumar
-
25. maí 2022Uppstigningardagur
-
20. apr 2022Porsche 911 Turbo frumsýndur
-
19. nóv 2021Stórglæsileg rafbílasýning