Bifvélavirki í söluskoðanir

Bílabúð Benna óskar eftir vönum bifvélavirkja til starfa á þjónustuverkstæði fyrirtækisins. Leitað er að einstaklingi með þægilegt viðmót, keppnisskap og hæfileika til að vinna í teymi. Um er að ræða 100% stöðu í framtíðarstarfi.

Hæfniskröfur:
• Sveinspróf í bifvélavirkjun eða viðamikil reynsla í viðgerðum
• Mjög góð tölvukunnátta
• Sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð
• Metnaður og vilji til að ná árangi

Starfssvið:
• Söluskoðanir
• Undirbúningur fyrir sölu
• Verðmat viðgerða
• Þátttaka í þjálfunarætlun
• Önnur verkefni tengd starfinu

Nánari upplýsingar um starfið veitir Elías Jóhannesson, verkstæðisformaður, elias@benni.is. Umsóknafrestur er til og með 31. mars.