Fyrirtækjaþjónusta

Hátt þjónustustig fyrir fyrirtæki

Bílabúð Benna hefur áratuga tækniþekkingu og reynslu innan sinna vébanda. Fyrirtækið hefur markað sér ákveðna þjónustustefnu sem tekur mið af þörfum allra viðskiptavina sinna.

Undanfarin ár höfum við sótt í ríkari mæli inn á fyrirtækjamarkaðinn með mjög breitt val af Chevrolet í framlínunni. Samhliða því höfum við sett á laggirnar sérstaka fyrirtækjaþjónustu, með háu þjónustustigi.

Ný þjónustumiðstöð

Ný þjónustumiðstöð Bílabúðar Benna er til húsa að Tangarhöfða 8.
Þar veitum við viðgerðar- og hraðþjónustu, hjólbarðaþjónustu ásamt fullkominni smurþjónustu.

Varahlutalager okkar er vel búinn helstu varahlutum sem snúa að reglubundinni þjónustu og vöruhús erlendis sem við skiptum við, geta afgreitt pantanir okkar á mettíma, þegar svo ber undir. Við erum alltaf tilbúnir að þjóna þér og þínu fyrirtæki.