Chevrolet Volt
Skráning á frumsýningu Chevrolet Volt
Rafbíll með meira ökudrægi
Volt er ekki einungis nýr bíll. Hann er fyrsti rafbíll sögunnar sem framleiðir sína eigin raforku. Þetta eykur ökudrægi hans sem er tæpir 600 km.
Volt var útnefndur Bíll ársins í Bandaríkjunum 2011. Hann er fyrsti rafbíllinn í heiminum sem fær þessa eftirsóttu viðurkenningu. Í úrslitum bar hann sigurorð af rafbílnum Nissan Leaf og tvinnbílnum Hyundai Sonata. Volt hefur unnið til annarra mikilvægra verðlauna og viðurkenninga. Þar á meðal eru:
AUTOMOBILE Magazine - Bíll ársins 2011, Motor Trend - Bíll ársins 2011, Green Car Journal - Umhverfisbíll ársins 2011.
Í Evrópu hefur Volt þegar verið valinn umhverfisbíll ársins af ARBÖ - stærsta bílaklúbbi Austurríkis.
Mikil eftirvænting hefur ríkt í kringum Chevrolet Volt. Sala á bílnum hefst síðar á þessu ári í Evrópu í takmörkuðu magni. Áhugi bílkaupenda er hins vegar mikill. Við viljum því gefa þér tækifæri til sýna áhuga þinn í verki hér. Sendu okkur fyrirspurn og hugsanlega verður þú í hópi fyrstu ökumanna í Evrópu sem fá að njóta þess að aka Volt, rafbíl með meira ökudrægi en áður hefur þekkst.
Volt - engar áhyggjur af ökudrægi
Í flestum rafbílum sem nú eru á markaði verður ökumaðurinn að fylgjast grannt með hleðslumælinum, því um leið og rafgeymirinn tæmist er ferðin líka á enda. Og þetta getur gerst fjarri næstu endurhleðslustöð.
Volt er öðruvísi.
Volt er með 1,4 lítra bensínvél sem er vökvakældum rafgeyminum til stuðnings. Rafall bensínvélarinnar getur viðhaldið hleðslu á rafgeyminum þannig að heildarökudrægið verður tæpir 600 km.
Þetta virkar svona: Rafgeymirinn er tengdur við venjulegt 230 volta úttak og hlaðinn í u.þ.b. 3 klukkustundir. Að því loknu kemst bíllinn 80 km leið án nokkurs útblásturs. En ferðinni þarf ekki þar með að vera lokið því Volt - og það sem meira er um vert, þú, getur haldið för þinni áfram þökk sé innbyggða rafalinum sem eykur ökudrægi bílsins svo um munar.
Góðir aksturseiginleikar og nýjungar
Hér eru aðeins nokkrar af fjölmörgum tækninýjungum sem gera Volt sérstakan.
Volt lagar sig að þér og akstursþörfum þínum með fjórum mismunandi akstursstillingum:
Normal - stillingin sem þú notar yfirleitt alltaf
Sport - stilling fyrir kraftmeiri akstursstíl
Mountain - þegar þú ekur um bratta slóða skilar þessi stilling hámarks skilvirkni í akstri
Hold - þessi stilling er sérstaklega hönnuð fyrir akstursaðstæður í Evrópu. Með henni er hægt að aka eingöngu fyrir þeirri orku sem bensínvélin og rafall bílsins framleiða. Fyrir vikið viðhelst hleðsla rafgeymisins. Ökumaðurinn getur þess vegna ákveðið hvenær og hvar hann nýtir sér þann kost að aka bílnum fullkomlega mengunarlausum.
Volt er með hemlakerfi með orkuheimt. Þessi búnaður gerir bílnum kleift að endurheimta orku sem tapast annars við hemlun, hleður henni inn á rafgeyminn og eykur þar með hleðslutíma hans og þar með ökudrægi bílsins.
Volt - þægindi í innanrými, búnaður og öryggi
Innanrými Volt býður upp á meiri þægindi, meira rými, hagkvæmni og búnað en ætla mætti.
Einn af hápunktunum er háþróað upplýsinga- og afþreyingarkerfi fyrir miðju mælaborðinu en þar með er sagan ekki öll sögð:
7" háskerpu litaskjár, LCD, stillanlegur mælaklasi
Hljómtæki með leiðsögukerfi, 60 GB hörðum diski, DVD og MP3 spilurum og vistun á tónlist og kvikmyndum. Fáanleg með RDS
Tónlistarstreymi og handfrjáls símanotkun með Bluetooth tengingu
Hágæða Bose hljómflutningstæki, sérhönnuð fyrir Volt. Tækin skila þeim heimsklassa hljómflutningsgæðum sem Bose merkið er þekkt fyrir, með lágmarks orkuþörf, 6 hátölurum og bassahátalara
Lykillaus ræsing með titringi í ræsihnappi og hljóðmerki
Sjálfvirkt loftfrískunarkerfi með rakaskynjara
Fjarræsibúnaður sem gerir ökumanni kleift að forkæla eða forhita innanrými bílsins (þar með talin upphitanleg sætin)
Volt veitir farþegum sínum skjól
Volt verndar farþegana í bílnum með eftirtektarverðum hætti með öryggisbúnaði sem felur m.a. í sér:
Hástyrktarstál í yfirbyggingu
Aflögunarsvæði að framan og aftan
Átta öryggispúðar
Stabilitrak rafeindastýrð stöðugleikastýring með veggripsstýringu
- 16 kW liþíum-jóna, vökvakældur, endurhlaðanlegur rafgeymir.
- Á milli 40-80 km, háð vegyfirborði, hitastigi og aksturslagi.
- U.þ.b. 4 klukkustundir.
- Tæpir 600 km (með innbyggðum rafal)
- Vinnsla við kjörsnúning.
- Rafvökvastýrðir með orkuheimt, kældir diskar að framan og aftan, hemlalæsivörn (ABS).
- Michelin hjólbarðar með litlu snúningsviðnámi.
- 161 km/klst.
- 111 kW / 150 hö.
- 368 Nm - tafarlaust tog.
- 4498
- 1787
- 1439
- 310/1005 L
- 1732
- 35.3