Chevrolet Malibu
Chevrolet Malibu er goðsögn í Bandarískum bílaiðnaði, bill sem menn hafa haft í hávegum í meira en fjóra áratugi. Síðustu þrjú árin hefur Malibu verið valinn „Bestu kaupin“ í Consumers Digest Automotive. Chevrolet Malibu hefur verið aðlagaður fyrir akstur í Evrópu og er nú loks kominn á markað hérlendis.
Fyrstu hughrifin þegar horft er á nýjan Malibu eru einstök. Jafnvel í fjarska býr hann yfir fegurð sem sker hann úr fjöldanum. Flæðandi formlínurnar og afbragðs frágangur gerir Malibu að bíl sem býr yfir miklum þokka og orku.
Sportlegar og kraftalegar línurnar í Malibu sækja innblástur í aðra fræga Chevrolet bíla. Chevrolet Camaro kemur strax upp í hugann þegar litið er á hliðarlínuna og sportleg afturljósin. Malibu kemur á sportlegum léttmálmsfelgum og einkennandi er hin tvískipta stjórnrýmishönnun. Í Malibu stendur þér til boða lúxusgæði og fyrirtaks þægindi á hagstæðu verði.
SKILGREINDU SJÁLFAN ÞIG Ed Welburn,
aðstoðarforstjóri alþjóðlegrar hönnunar
„Við vildum hanna bíl sem stæði fyrir kjarnanum í bandarískri bílaupplifun: Rennilegar, kraftalegar línur sem sækja innblástur til Camaro og lúxusinnréttingar ásamt miklu innanrými.“
Loftfrískunarkerfi gerir þér og og framsætisfarþeganum kleift að njóta nákvæmlega þess hitastigs sem þið kjósið. Malibu kemur með þriggja rima leðurstýri með aðdrætti og veltu, stjórnrofum fyrir upplýsinga- og afþreyingarkerfi og sérstaklega formuðu stýri sem stuðlar að nákvæmari stýringu. Malibu státar einnig af bestu hljóðeinangruninni í stærðarflokknum. Þess vegna nýtur þú enn betur innbyggða upplýsinga- afþreyingarkerfis bílsins. Því fylgir 7" snertiskjár í lit, níu hátalarar, Bluetooth tenging ásamt tengingum fyrir Aux, SD og USB. Sportlega formuð leðursætin eru einstaklega þægileg fyrir líkamann. Farþegar búi við mikið rými, óháð því hvar þeir sitja í bílnum. Ökumannssæti og farþegasæti að framan er auk þess með upphitun og rafstillingu ásamt mjóbaksstuðningi. Malibu er með rúmgóðu farangursrými og mörgum snjöllum hirslum, þar á meðal nokkrum leynihólfum. Það er því nóg pláss fyrir alla farþegana og allt sem þeim tilheyrir. Ef allt þetta er samkvæmt þínum óskum er þá ekki tímabært að halla sér aftur, njóta lífsins í ríkulega útbúnu og plássmiklu innanrými Malibu og njóta akstursins? Stöðustilling bílstjórasætisins í Malibu er með rafstilltri minnisaðgerð sem hægt er að breyta hvenær sem þörf er á því.
ÖRYGGI ÁN MÁLAMIÐLANA
Stefna Chevrolet í öryggismálum hefur alltaf verið sú að forðast með öllum tiltækum ráðum að til áreksturs komi. Chevrolet Malibu er af þessum sökum búinn hátæknivæddum öryggisbúnaði. Fáein dæmi um þetta er Stabilitrak rafeindastýrða stöðugleikakerfið, spólvarnarkerfi, sem kemur í veg fyrir hjól missi veggrip í slæmum akstursaðstæðum, og aflmikil xenon-framljós, sem kviknar og slokknar á með sjálfvirkum hætti.
Ef hins vegar allt fer á versta veg er gott að vita til þess að Malibu er með sérstyrktu farþegarými úr hástyrktarstáli og staðalbúnaður er auk þess sex öryggispúðir. Mikill öryggisbúnaður er enn ein ástæðan til þess að þú velur Chevrolet Malibu; bílinn sem heillaði þig áður en þú vissir af. Stabilitrak hjálpar þér að halda réttri leið. Búnaðurinn greinir frávikið milli stýringar og raunverulegrar stefnu bílsins. Hann beitir hemlunum, og ef nauðsyn ber til, breytir hann aflflæðinu frá vélinni til hjólanna þess að halda Chevrolet Malibu á réttri braut.