Chevrolet Cruze 4 dyra
Hvort sem er í borgarakstri eða lengri ferðum ert þú alltaf öruggur með gæði og frammistöðu Cruze.
Cruze setur ný viðmið í hönnun.
Chevrolet Cruze sameinar styrk og stílhreina hönnun, sem einkennir bílinn jafnt hið innra sem ytra og viðráðanlegt verð. Ekki síst þegar allur staðalbúnaður bílsins er tekinn með í reikninginn. Hann skarar ekki aðeins framúr hvað útlit varðar, heldur miðar styrkleikinn í samsetningunni og allur aðbúnaður að framúrskarandi þægindum og öryggi fyrir alla farþega.Euro NCAP, European Car Assessment Program, sjálfstæð stofnun sem metur árekstrarvarnir nýrra fólksbifreiða í Evrópu, hefur gefið Chevrolet Cruze hæstu einkunn eða fimm stjörnur. Cruze er fyrsti fólksbílinn til að fá toppeinkunn í báðum flokkunum síðan Euro NCAP hóf árekstursprófun árið 1997.