Uppgangur hjá SsangYong

skrifað fimmtudagur, 10. nóvember, 2016
Bílabúð Benna frumsýndi Rexton HLX, 33” breyttan jeppa<br> frá SsangYong, sem vakið hefur mikla athygli.Bílabúð Benna frumsýndi Rexton HLX, 33” breyttan jeppa
frá SsangYong, sem vakið hefur mikla athygli.

Benni segir SsangYong jeppana sniðna fyrir Íslendinga

Það hefur vakið athygli á bílamarkaðnum að Suður-Kóreski bílaframleiðandinn SsangYong hefur vaxið jafnt og þétt þrátt fyrir að þarlendir bílarisar hafi verið að upplifa framleiðsluminnkun og rekstrarerfiðleika á síðustu misserum.

SsangYong á sér langa sögu og rekur uppruna sinn til ársins 1954. Fyrirtækið hefur frá fyrstu tíð notið virðingar fagmanna fyrir tæknilegar lausnir og framúrskarandi hönnun. Það er nú hluti af Mahindra samsteypunni, sem hefur verið í miklum vexti á síðustu árum.

SangYong hefur þá sérstöðu að framleiða svo til eingöngu jeppa, en þeir hafa einmitt verið í örustum vexti á heimsvísu á síðustu árum. Uppgangur SsangYong fékk aukinn kraft með tilkomu nýja Tivoli sportjeppans, sem hefur slegið í gegn og heillað nýja markhópa. Í nýlegu uppgjöri frá SsangYong má glöggt sjá þróunina og að salan fer hressilega fram úr áætlunum fyrirtækisins; sem dæmi, var vöxtur í sölu á Tivoli um 35,8 % milli ára, fyrstu 10 mánuði ársins.

Bílabúð Benna er umboðsaðili SsangYong á Íslandi. Margir landsmenn eiga góðar minningar um hörkutólið Musso frá SsangYong sem seldist einkar vel hérlendis á árunum 1993 til 2003 og eru ennþá áberandi í umferðinni, sumir með jafnvel tuttugu ára þjónustu að baki. „Við settum aukinn kraft í innflutning á SsangYong í fyrra eftir nokkurra ára hlé og höfum fundið fyrir verulegri eftirspurn,“ segir Benedikt Eyjólfsson, forstjóri Bílabúðar Benna. „Fólk er greinilega að kveikja á því, líkt og með Musso hér um árið, hvað það er að fá mikið fyrir peninginn með kaupum á nýju jeppunum, Rexton, Korando og Tivoli.
Það er okkar tilfinning að nýju SsangYong jepparnir eigi mikið inni á markaðnum. Áhuginn leyndi sér heldur ekki á vel heppnaðri SsangYong jeppasýningu okkar nú á dögunum, þar var fjölmennt og margir sem staðfestu pantanir.“ segir Benedikt.

Skoða jeppana frá SsangYong