Stórglæsileg saga Porsche 911 á sýningu

S12_0068S12_0068
mánudagur, 13. febrúar, 2012

Porsche hefur verið ókrýndur konungur og “holdgervingur” sportbílsins í yfir fjóra áratugi. Einmitt þess vegna er frumsýning á nýrri 911 kynslóð, viðburður sem vekur undantekningalaust mikla eftirtekt.

Um þessar mundir hafa yfir 700,000 sportbílar af gerðinni 911 verið framleiddir í Porsche verksmiðjunni í Stuttgart-Zuffenhausen, frá því hann var afhjúpaður fyrst árið 1963. 911 bíllinn á engan sinn líkan og þar liggur uppskriftin að velgengni hans í gegnum tíðina. Í honum sameinast eiginleikar sem virðast ósamrýmanlegir; sportbíll sem nýtist í daglegu amstri, hefð og nýsköpun, hönnun og notagildi. Allar sjö kynslóðirnar af 911 hafa, hver á sinn hátt, átt sinn sérstaka þátt í þróunar- og velgengnissögu bílsins. Nú hefur verið sett upp glæsileg sýning, í Porsche safninu í Stuttgart, sem spannar allar 911 kynslóðirnar, að meðtalinni nýjustu útgáfunni. Baksvið bílanna á sýningunni tekur mið af umhverfi hvers tíma og gefur fræðandi og skemmtilega sýn á það andrúmsloft sem þetta einstaka tákn sportbílsins hefur átt þátt í að móta, hver á sinn hátt. Sýningin er óviðjafnanleg upplifun fyrir alla sanna bílaáhugamenn og stendur frá 31. janúar til 20. maí 2012.

S12_0069S12_0070S12_0071S12_0072S12_0073