Nýr toppur hjá Chevrolet í Evrópu

Nýr toppur hjá Chevrolet í Evrópu
mánudagur, 5. desember, 2011

Tilkynnt var nú á dögunum að frá og með 1. Janúar 2012 tæki Susan Docherty við stöðu framkvæmdastjóra Chevrolet í Evrópu. Hún tekur við stöðunni af Wayne Brannon sem lætur af störfum að eigin ósk eftir 38 ára starf hjá General Motors.

Susan Docherty hefur gengt mörgum ábyrgðarstörfum hjá Chevrolet. Susan Docherty: “Það er mér mikill heiður að taka við keflinu af Wayne Brannon og ég mun kappkosta að fylgja eftir því stórgóða gengi sem Chevrolet hefur átt að fagna undanfarin misseri á Evrópumarkaði.”

Chevrolet hefur tvöfaldast í sölu á Evrópumarkaði undir stjórn Wayne Brannon. Fyrstu þrjá ársfjórðunga 2011 voru 380.000 Chevrolet bílar seldir í Evrópu og jók Chevrolet markaðshlutdeild sína um tugi prósenta í yfir 11 Evrópulöndum.

Brannon: “ Það hefur verið stórkostlegt, á hundrað ára afmæli fyrirtækisins, að eiga þátt í því að endurheimta traust Evrópu á Chevrolet gæðunum og með allar þær nýjungar sem eru í farvatninu hjá Chevrolet gæti framtíðin ekki verið bjaratari. ”