Góa fær liðsauka frá Opel

skrifað fimmtudagur, 24. nóvember, 2016
Helgi í Góu, fékk afhenta tvo glæsilega Opel Movano sendibíla nýlega.Helgi í Góu, fékk afhenta tvo glæsilega Opel Movano sendibíla nýlega.

Jólin nálgast óðfluga og þá eru sendibílar mikið á ferðinni og ekkert má klikka.

Þá er eins gott að þeir séu vandanum vaxnir, hvort heldur sem er í þjónustu við mannfólkið, jólasveinana eða fyrirtækin.

Sælgætisgerðin Góa hefur í nógu að snúast allan ársins hring og þá ekki síst fyrir jólin þegar framleiðsla þeirra er á hvers manns vörum. Til að mæta eftirspurn bætti Góa við sendibílaflota sinn nú á dögunum og fyrir valinu urðu atvinnubílar frá Opel.

Góður gangur hefur verið í sölu atvinnubíla frá Opel á árinu, enda eru þeir hagkvæmir í rekstri og drifnir áfram af tæknibúnaði sem uppfyllir ítrustu kröfur bæði fyrirtækja og einyrkja.

Þú finnur nánari upplýsingar um Opel atvinnubíla hér