Dominos velur Chevrolet Spark!

Benedikt Eyjólfsson framkvæmdastjóri Bílabúðar Benna og Birgir Örn Birgisson framkvæmdastjóri Dominos Pizza, við afhendingu á fyrstu Spark bílunum til fyrirtækisinsBenedikt Eyjólfsson framkvæmdastjóri Bílabúðar Benna og Birgir Örn Birgisson framkvæmdastjóri Dominos Pizza, við afhendingu á fyrstu Spark bílunum til fyrirtækisins
sunnudagur, 20. nóvember, 2011

Dominos Pizza er leiðandi á skyndibitamarkaðnum á Íslandi. Velgengni fyrirtækisins byggist á stöðugleika í gæðum og þjónustu. Þar er lögð áhersla á fyrsta flokks hráefni og vöru á öllum þjónustustigum.

Fyrirtækið er með 60 bíla í rekstri og það er hluti af umhverfisstefnu þess að nýta í auknum mæli umhverfisvæna orkugjafa t.d. Metan í framtíðinni. Dominos tók því ákvörðun nýlega um að endurnýja flotann, á næstu misserum, með Chevrolet Spark. Við þökkum traustið og erum sannfærð um að Chevrolet Spark á eftir að standa undir miklum kröfum fyrirtækisins og viðskiptavina þess.

Starfsfólk Bílabúðar Benna býður Dominos Pizza velkomið í hóp viðskiptavina.