Chevrolet kosið bílafyrirtæki ársins í Evrópu
Dómnefnd skipuð leiðandi bílablaðamönnum í 15 Evrópuríkjum veittu Chevrolet í Evrópu “COMPANYBEST” verðlaunin fyrir árið 2011, sem tímaritið AUTOBEST stendur að.
Ilia Seliktar framkvæmdastjóri AUTOBEST: “Það er sérlega ánægjulegt að veita þessu goðsagnarkennda vörumerki verðlaunin í ár, en Chevrolet fagnaði einmitt 100 ára afmæli sínu á árinu. Til grundvallar liggur, fyrst og fremst, að Chevrolet hefur átt geysilega mikilli velgengni að fagna í sölu á Evrópumarkaði á árinu og náð sérlega athyglisverðum árangri í uppbyggingu á gæðaímynd sinni og trausti. Við viljum nota tækifærið og hrósa sérstaklega Wayne Brannon sem leitt hefur gæða – og markaðssókn Chevrolet í Evrópu undanfarin ár.” “Það er okkur mikill heiður að fá þessa viðurkenningu frá bestu fagmönnum í greininni. Þetta ár hefur verið einstakt í sögu Chevrolet með frumsýningu á sjö nýjum bílum. Viðskiptavinum okkar stendur nú til boða fleiri valkostir, framsæknari hönnun og meiri gæði og það á enn viðráðanlegra verði.”, sagði Wayne Brannon við þetta tækifæri.
Fleiri fréttir
-
15. feb 2012Chevrolet hlýtur verðlaun fyrir fyrsta langdræga rafbílinn
-
13. feb 2012Stórglæsileg saga Porsche 911 á sýningu
-
08. feb 2012Langur bíladagur 4x4
-
14. des 2011Bílabúð Benna styrkir Mæðrastyrksnefnd
-
05. des 2011Nýr toppur hjá Chevrolet í Evrópu
-
23. nóv 2011Fékk Spark í vinning
-
20. nóv 2011Dominos velur Chevrolet Spark!
-
15. nóv 2011100 ára afmælisbarn
-
05. nóv 2011Chevrolet í heila öld