Chevrolet í heila öld
Opinber 100 ára afmælisdagur Chevrolet er þriðji nóvember. Chevrolet hefur fagnað tímamótunum með margvíslegum hætti allt árið, m.a. með veglegum framlögum til samfélags- og góðgerðarmála víða um heim.
Á afmælisdaginn afhendir Chevrolet SOS Barnaþorpum síðasta bílinn af þeim 100 sem gefnir hafa verið til þessara sjálfstæðu barnahjálparsamtaka. Á afmælisdaginn hefst og sala á Volt, fyrsta langdræga rafmagnsbílnum, til neytenda í Evrópu.
Rafmagnaður Volt er væntanlegur til Íslands í byrjun næsta árs. Hér heima hefur Bílabúð Benna, umboðsaðili Chevrolet, verið stuðningsaðili SOS Barnaþorpa á Íslandi og látið ákveðna upphæð af andvirði hvers selds bíls, á afmælisárinu, renna til starfseminnar. Laugardaginn, 5. nóvember, bíður Bílabúð Benna gestum og gangandi að fagna tímamótunum í Chevrolet salnum á Tangarhöfða. Þar verður boðið upp á afmælistilboð með nýjum bílum, frumsýningar og afmæliskaffi.
Fleiri fréttir
-
03. maí 2012Áfram veginn í Eyjum
-
18. apr 2012Ennþá meiri snilld frá Porsche Frumsýning sumardaginn fyrsta
-
26. mar 2012Ríkisstjórnin lækkar virðisaukaskatt af Volt
-
13. mar 2012Hver syngur Captiva lagið?
-
11. mar 2012Rafbíllinn Volt fær virtustu verðlaun bílaiðnaðarins
-
27. feb 2012Porsche hlýtur hæstu einkunn
-
23. feb 2012Öskudagsuppistand í Bílabúð Benna
-
15. feb 2012Chevrolet hlýtur verðlaun fyrir fyrsta langdræga rafbílinn
-
13. feb 2012Stórglæsileg saga Porsche 911 á sýningu
-
08. feb 2012Langur bíladagur 4x4