Chevrolet hlýtur verðlaun fyrir fyrsta langdræga rafbílinn
Dómnefnd á vegum tímaritsins AUTOBEST, sem skipuð var leiðandi bílablaðamönnum í 15 Evrópuríkjum, veittu Chevrolet “ECOBEST” verðlaunin fyrir árið 2011.
“Chevrolet er brautryðjandi og framleiðir Volt, fyrsta langdræga rafbílinn sem telja má raunhæfan kost fyrir hinn almenna bíleiganda (Extended Range Electric Vehicle E-REV). Volt er knúinn áfram af einni umhverfisvænustu tækni í heimi og er skýrt tákn um það frumkvæði sem amerískur bílaiðnaður hefur tekið á þessu sviði. Við hjá AUTOBEST erum sérstaklega stolt að því að veita ECOBEST viðurkenninguna til Chevrolet í ár fyrir þá byltingarkenndu lausn sem rafbíllinn Volt er fulltrúi fyrir. Jafnframt erum við þess fullviss að margar viðlíka eiga eftir að fylgja í kjölfarið,” sagði Ilja Seliktar framkvæmdastjóri AUTOBEST.
Chevrolet Volt kemst allt að 80 km vegalengd á rafhleðslunni einni saman, án nokkurar eldsneytisnotkunar eða útblásturs. Róttækasta nýjungin í rafbílnum Volt felst í því að geta haldið áfram för þó að rafmagnið þrjóti. Ökudrægi Volt er samtals rúmlega 500 km en öll viðbótar vegalengdin fæst með inngripi 1.4 lítra, 86 ha. bensínvélar sem knýr rafalinn.
Fleiri fréttir
-
03. maí 2012Áfram veginn í Eyjum
-
18. apr 2012Ennþá meiri snilld frá Porsche Frumsýning sumardaginn fyrsta
-
26. mar 2012Ríkisstjórnin lækkar virðisaukaskatt af Volt
-
13. mar 2012Hver syngur Captiva lagið?
-
11. mar 2012Rafbíllinn Volt fær virtustu verðlaun bílaiðnaðarins
-
27. feb 2012Porsche hlýtur hæstu einkunn
-
23. feb 2012Öskudagsuppistand í Bílabúð Benna
-
13. feb 2012Stórglæsileg saga Porsche 911 á sýningu
-
08. feb 2012Langur bíladagur 4x4