Captiva í verðlaunaþætti
í sumar hefur staðið yfir framleiðsla á nýrri þáttaröð af verðlaunaþáttunum Með okkar augum. Þættirnir vöktu mikla athygli í fyrra en í þeim spreytir fólk með þroskahömlun sig á dagskrárgerð með aðstoð fagmanna.Bílabúð Benna styrkti verkefnið með láni á Captiva, 7 manna sportjeppa, á meðan að framleiðslan stóð yfir í sumar.
Þættirnir hlutu ýmis verðlaun og viðurkenningar, þar á meðal Múrbrjót Landssamtakanna Þroskahjálpar, Hvatningarverðlaun Öryrkjabandalags Íslands og Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins. Elín Sveinsdóttir, sem er framleiðandi og upptökustjóri þáttanna ásamt Inga R. Ingasyni, segir þættina mikilvæga og vekja athygli á málefnum fatlaðra og þroskahamlaðra og sýni að fólki með þroskahömlun séu margvíslegar leiðir færar. Dagskrárgerð er í höndum þeirra Andra Freys, Bjarna, Eiðs, Katrínar Guðrúnar, Richards, Skúla Steinars og Steinunnar Ásu. Í viðtali við í Fréttablaðinu var jafnframt haft eftir Elínu, “Þau hafa þroskast mikið með verkefninu og komu tvíefld til leiks í ár.” Þættirnir eru unnir að frumkvæði Landssamtakanna Þroskahjálpar með stuðningi frá velferðarráðuneyti og mannréttindaráði Reykjavíkurborgar. Þættirnir Með okkar augum verða á dagskrá RÚV, á miðvikudögum í sumar.
Eldri fréttir
-
07. maí 2013Nýr Trax ber styrkinn með sér
-
02. maí 2013Chevrolet og Porsche í Fífunni
-
26. apr 2013Frumsýning á Sportbíl heimsins
-
22. apr 2013Vinningshafar í sumarskapi
-
05. apr 2013Verðlækkun á Chevrolet
-
25. mar 2013Dregið í 4X4 happdrætti Bílabúðar Benna
-
22. mar 2013Gúmmí og grill í nýjum dekkjalager BB
-
11. mar 20134X4 í afmælisboði hjá Bílabúð Benna
-
08. mar 2013Ferðaklúbburinn 4X4 30 ára – Afmælisboð 9. Mars
-
22. feb 2013Leikmenn United í bestu sætunum