Bílabúð Benna styrkir Mæðrastyrksnefnd

Við afhendingu: Margrét Beta Gunnarsdóttir og Benedikt Eyjólfsson frá Bílabúð Benna ásamt Ragnhildi G. Guðmundsdóttur og Margrét K. Sigurðardóttir frá Mæðrastyrksnefnd.Við afhendingu: Margrét Beta Gunnarsdóttir og Benedikt Eyjólfsson frá Bílabúð Benna ásamt Ragnhildi G. Guðmundsdóttur og Margrét K. Sigurðardóttir frá Mæðrastyrksnefnd.
miðvikudagur, 14. desember, 2011

Í stað þess að senda viðskiptavinum sínum jólagjafir var ákveðið að endurtaka leikinn frá í fyrra og gefa 100 Nóatúns hamborgarhryggi til fjölskyldna og einstaklinga sem eru í vanda yfir hátíðarnar.

„Hjálparstarf Mæðrastyrksnefndar hefur lengi gegnt mikilvægu hlutverki í samfélaginu og því er okkur bæði ljúft og skylt að leggja þessu málefni lið” sögðu hjónin Margrét Beta Gunnarsdóttir og Benedikt Eyjólfsson, eigendur Bílabúðar Benna, við afhendingu jólaaðstoðar til Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur, nú á dögunum.